Fleiri svör frá Landsvirkjun

 

Eftirfarandi er 1. málsgrein 23. gr. Skipulags- og byggingarlaga:  "Sveitarstjórn ber ábyrgð á og annast gerð deiliskipulags. Landeiganda eða framkvæmdaraðila er þó heimilt að gera tillögu til sveitarstjórnar að deiliskipulagi eða breytingu á deiliskipulagi á sinn kostnað."  Sjá lögin í heild:  http://www.althingi.is/lagas/136b/1997073.html

 Þegar um viðamikið mál er að ræða fellur til verulegur kostnaður vegna vinnu langt umfram almenna stjórnsýslu og það er  talið eðlilegt að framkvæmdaraðilinn greiði þann kostnað í samræmi við lagagreinina hér að ofan.  Landsvirkjun hefur víða um land gert ssamstarfssamninga við sveitarfélög til að halda utan um mál af þessu tagi.  Greiðslan sem komið hefur til umræðu er greiðsla frá Landsvirkjun til Skeiða- og Gnúpverjahrepp vegna  vinnu 2006 til 2008.  Stærsti hlutinn er vegna aðkeyptrar sérfræðivinnu á vegum sveitarfélagsins.  Engar greiðslur  hafa farið frá Landsvirkjun til einstaklinga.  Það er sveitarfélagið sem í hlut á sem greiðir sínu fólki í samræmi við lög og reglur sem þar um gilda - sveitarstjórnarmönnum, starfsmönnum og/eða aðkeyptum sérfræðingum. 

Þetta er ekki einstakt hvað skipulagsmál og sveitarfélög varðar.  Skv. lögum um mat á umhverfisáhrifum greiðir framkvæmdaraðili fyrir vinnu Skipulagsstofnunar við að úrskurða um matið og við stórar framkvæmdir (td Kárahnjúkavirkjun) greiðir framkvæmdaraðili fyrir stjórnsýslu á borð við heilbrigðis- og vinnueftirlit.


mbl.is „Ekkert óeðlilegt við greiðslur LV“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband